Yrða

eyrir

nafnorð karlkyn
1
1/100 úr krónu
2
einkum í fleirtölu
fé, peningar
áttu einhverja aura handa mér?
eiga ekki grænan eyri
eiga enga peninga
horfa ekki í aurana
hugsa ekki út í kostnaðinn
lendur og lausir aurar
jarðeignir og peningar
spara eyrinn en kasta krónunni
spara í því smáa en hafa ekki áhyggjur af miklum kostnaði
vita ekki aura sinna tal
vera óheyrilega ríkur
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
peningar / fjármunir
Samstæður
Orðasambönd
  • flytjandi eyrir
  • geyma eyrinn en fleygja krónunni
  • horfa í eyrinn en kasta krónunni
  • spara eyrinn en fleygja krónunni
  • spara eyrinn en kasta krónunni
  • spara eyrinn en kasta út krónunum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
eyrir
eyririnn
þolfall
eyri
eyrinn
þágufall
eyri
eyrinum
eignarfall
eyris
eyrisins