Yrða

flytja

sagnorð þolfall
1
færa (e-ð) milli staða
skipið flytur vörur milli landa
rútan flutti ferðafólkið um héraðið
2
skipta um aðsetur, færa heimili sitt
þau hafa ákveðið að flytja
hann flutti í sveitina í vor
flytja að heiman
3
fara með (lag, ræðu), færa (e-ð) fram í orðum
hún flutti fyrirlestur á ráðstefnunni
hljómsveitin flutti tvö lög við útskriftina
4
flytja + inn
flytja inn <vélar>
fara með (e-ð) sem söluvöru til landsins
verslunin flytur inn fatnað og skó
5
flytja + út
flytja út <kjötvörur>
fara með (e-ð) sem söluvöru úr landi
verksmiðjan flutti út húsgögn á árum áður
→ sjá: flytjast sagnorð, fluttur lýsingarorð
Orðasvið og orðasambönd
Orðasambönd
  • flytja að heiman
  • flytja af landi brott
  • flytja andakt
  • flytja á mölina
  • flytja bónorðið
  • flytja búferli sitt
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
flyt
flutti
önnur persóna
flytur
fluttir
þriðja persóna
flytur
flutti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
flytji
flytti
önnur persóna
flytjir
flyttir
þriðja persóna
flytji
flytti
nafnháttur
flytja
sagnbót
flutt
lýsingarháttur nútíðar
flytjandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
flyt
flyttu
flytjið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
flyturðu
fluttirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
flytjirðu
flyttirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
fluttur
flutt
flutt
þolfall
fluttan
flutta
flutt
þágufall
fluttum
fluttri
fluttu
eignarfall
flutts
fluttrar
flutts