kafli
nafnorð karlkyn
1
aðgreindur efnisþáttur í bók, oftast tölusettur, bókarkafli
síðasti kafli bókarinnar var frábær
2
hluti af vegi eða leið
<vegurinn er ósléttur> á köflum
3
lítill eða stór hluti tímabils, tímaskeið
þetta var mikilvægur kafli í sögu landsins
<það er blindhríð> með köflum
4
reitur í köflóttu efni
kaflarnir í efninu eru rauðir og grænir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
kafli
kaflinn
þolfall
kafla
kaflann
þágufall
kafla
kaflanum
eignarfall
kafla
kaflans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
kaflar
kaflarnir
þolfall
kafla
kaflana
þágufall
köflum
köflunum
eignarfall
kafla
kaflanna