kallast
sagnorð miðmynd
1
vera nefndur, kallaður (e-ð)
þessi steinn kallast tígrisauga
svona slöngur kallast anakondur
2
vera álitið (e-ð)
þetta geta ekki kallast mannasiðir
á þetta að kallast lýðræði?
mega kallast heppinn
hafa verið heppinn
hún má kallast heppin að hafa sloppið ómeidd
3
kallast + á
a
kallast á
kalla hvor til annars
þau kölluðust á milli herbergja
b
<gömul hús> kallast á við <nýbyggingar>
gömul hús og ný eru á sama fleti, mynda vissa stemningu eða sjónarspil (ýmist í í samræmi eða ósamræmi); þessu tvennu er stillt upp saman
→ sjá: kalla sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
kallast
kallaðist
önnur persóna
kallast
kallaðist
þriðja persóna
kallast
kallaðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
köllumst
kölluðumst
önnur persóna
kallist
kölluðust
þriðja persóna
kallast
kölluðust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
kallist
kallaðist
önnur persóna
kallist
kallaðist
þriðja persóna
kallist
kallaðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
köllumst
kölluðumst
önnur persóna
kallist
kölluðust
þriðja persóna
kallist
kölluðust
nafnháttur
kallast
sagnbót
kallast
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
kallastu
kallaðistu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
kallistu
kallaðistu