klaki
nafnorð karlkyn
1
frosið vatn í umhverfinu, ís
2
ísmolar (t.d. í drykk)
ég ætla að fá vatn með engum klaka
koma <honum> á kaldan klaka
koma honum í mikil vandræði
vera á köldum klaka
vera illa staddur (vegna fátæktar), allslaus
Klakinn
óformlegt
Ísland
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
klakamyndun
Orðasambönd
- bíta klakann
- fara út á hálan klaka
- klaka leysir úr jörð
- klaka tekur úr jörðu
- leggjast á klakann
- naga klakann
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
klaki
klakinn
þolfall
klaka
klakann
þágufall
klaka
klakanum
eignarfall
klaka
klakans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
klakar
klakarnir
þolfall
klaka
klakana
þágufall
klökum
klökunum
eignarfall
klaka
klakanna