lína
nafnorð kvenkyn
1
beint og langt strik
nemandinn skrifaði í aðra hverja línu
2
lárétt letureining í texta
hver nemandi las nokkrar línur úr textanum
3
strengt band, taug
hann strengdi línu meðfram blómabeðinu
4
veiðarfæri
sjómennirnir veiddu á línu
5
stefna í stjórnmálum
hann var ekki á sömu línu og formaður flokksins
leggja línurnar/línuna
ákveða stefnuna
lesa <þetta> á milli línanna
skilja það sem ekki er sagt beinum orðum
passa upp á línurnar
halda sér grönnum
þetta eru hreinar línur
það er alveg klárt, fer ekki á milli mála
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
lína
línan
þolfall
línu
línuna
þágufall
línu
línunni
eignarfall
línu
línunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
línur
línurnar
þolfall
línur
línurnar
þágufall
línum
línunum
eignarfall
lína
línanna