lýsingarháttur
nafnorð karlkyn lýsingar-háttur
málfræði
annar af tveimur fallháttum sagna
lýsingarháttur nútíðar
endar á -andi, táknar oft verknað sem stendur yfir ('hún kom syngjandi')
lýsingarháttur þátíðar
með hjálparsögninni hafa eða vera, beygist í kyni, tölu og falli ('ég hef vanrækt þetta', 'þeir eru farnir')
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
lýsingarháttur
lýsingarhátturinn
þolfall
lýsingarhátt
lýsingarháttinn
þágufall
lýsingarhætti
lýsingarhættinum
eignarfall
lýsingarháttar
lýsingarháttarins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
lýsingarhættir
lýsingarhættirnir
þolfall
lýsingarhætti
lýsingarhættina
þágufall
lýsingarháttum
lýsingarháttunum
eignarfall
lýsingarhátta
lýsingarháttanna