lýsing
nafnorð kvenkyn lýs-ing
1
það að lýsa, veita birtu
það er góð lýsing í eldhúsinu
lýsingin var bara eitt kerti
2
frásögn af einhverju, greinargerð um eitthvað
lýsing á ferðalaginu
lögreglan er með nákvæma lýsingu á manninum
eftir lýsingunni að dæma gæti þetta verið makríll
3
handritafræði
skreyting handrits eða bókar
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
lýsing
lýsingin
þolfall
lýsingu
lýsinguna
þágufall
lýsingu
lýsingunni
eignarfall
lýsingar
lýsingarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
lýsingar
lýsingarnar
þolfall
lýsingar
lýsingarnar
þágufall
lýsingum
lýsingunum
eignarfall
lýsinga
lýsinganna