lifa
sagnorð
1
vera á lífi
hún hefur lifað í 90 ár
sjúklingurinn lifði ekki lengi
lengi lifi konungurinn!
2
búa, dvelja, vera (einhvers staðar)
fiskurinn lifir í ósöltu vatni
aparnir lifa í frumskóginum
3
þolfall
upplifa, reyna (e-ð)
hann hafði lifað tvær heimsstyrjaldir
4
(um eld eða glóð) vera ekki slokknaður
eldurinn lifði enn í arninum
það lifir í <glæðunum>
5
lifa + af
lifa af <kaupinu>
nota kaupið sér til framfærslu
hún segist ekki geta lifað af kennaralaununum
lifa af
komast lífs af
þrír lifðu af þegar flugvélin hrapaði
hermaðurinn lifði af stríðið
6
lifa + á
lifa á <ritstörfum>
hafa ritstörf sér til framfærslu
hann lifir á því að gera við bíla
lifa á <grasi>
éta gras sér til lífsviðurværis
hvalurinn lifir á fiski
við lifum mest á kjöti og kartöflum
7
lifa + eftir
lifa eftir <þessari reglu>
hegða sér í samræmi við þessa reglu
það sem eftir lifir <dagsins>
það sem eftir er af deginum
hún stýrði hótelinu það sem eftir lifði vetrar
8
lifa + fyrir
lifa fyrir <hana>
beina áhuga sínum og kröftum að henni
hún lifði fyrir dýrin á bænum
9
þolfall
lifa + inn í
lifa sig inn í <kvikmyndina>
vera staddur í kvikmyndinni í huganum
10
lifa + við
lifa við <þetta>
lifa við þetta ástand, vera í þessu ástandi
hún gat ekki lifað við þessa skömm
hann lifir við allsnægtir í tveimur löndum
þvottavélin er ekki mjög góð en ég get lifað við hana
→ sjá: lifandi lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
lifi
lifði
önnur persóna
lifir
lifðir
þriðja persóna
lifir
lifði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
lifum
lifðum
önnur persóna
lifið
lifðuð
þriðja persóna
lifa
lifðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
lifi
lifði
önnur persóna
lifir
lifðir
þriðja persóna
lifi
lifði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
lifum
lifðum
önnur persóna
lifið
lifðuð
þriðja persóna
lifi
lifðu
nafnháttur
lifa
sagnbót
lifað
lýsingarháttur nútíðar
lifandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
lif
lifðu
lifið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
lifirðu
lifðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
lifiði
lifðuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
lifirðu
lifðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
lifiði
lifðuði