líf
nafnorð hvorugkyn
1
það að lifa
vera á lífi
halda lífi
2
það sem lifir, lífverur
lífið á jörðinni
3
dagleg tilvera, ævitími
lífið í sveitinni var tilbreytingasnautt
4
mikið um að vera, fjör
það er alltaf líf við höfnina
blása lífi í <félagið>
örva starfsemi félagsins
draga fram lífið á <fáeinum krónum>
framfleyta sér með naumindum
elska <hana> út af lífinu
elska hana takmarkalaust
gefa <honum> líf
þyrma lífi hans
gera <honum> lífið leitt
vera honum til ama
halda lífi og limum
komast óskaddaður (úr hættu)
komast lífs af
sleppa lifandi
láta lífið
farast (t.d. í stríði)
leggja líf sitt í sölurnar fyrir <föðurlandið>
hætta lífinu fyrir föðurlandið
lifa <heilbrigðu> lífi
stunda heilbrigt líferni
líf <hans> liggur við
líf hans er í húfi
reyna að halda lífinu í <fyrirtækinu>
gera sitt til að halda því gangandi
sitja um líf <hans>
bíða færis að drepa hann
svipta sig lífi
fremja sjálfsmorð
taka <manninn> af lífi
framfylgja dauðadómi yfir honum
týna lífi/lífinu
farast (voveiflega)
vakna til lífsins
lifna við
vekja <hana> til lífsins
koma lífi í hana
vera lífs eða liðinn
vera lifandi eða dáinn
þeir vissu ekki hvort týndi ferðamaðurinn væri lífs eða liðinn
vera með lífið í lúkunum
vera hræddur eða taugaóstyrkur
það er líf og fjör <í skólanum>
það er margt skemmtilegt að gerast í skólanum
<syngja> af lífi og sál
syngja af innlifun
<hrópa> af (öllum) lífs og sálar kröftum
hrópa eins hátt og maður getur
<honum> er ekki/vart hugað líf
hann er dauðvona
<honum> liggur lífið á
honum liggur mjög mikið á
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
líf
lífið
þolfall
líf
lífið
þágufall
lífi
lífinu
eignarfall
lífs
lífsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
líf
lífin
þolfall
líf
lífin
þágufall
lífum
lífunum
eignarfall
lífa
lífanna