Yrða

ljúga

sagnorð þágufall
segja ósatt
þetta er ekki rétt, hann lýgur þessu
nemendurnir lugu um veikindi sín
ljúga að <honum>
hún laug að mér að hún hefði greitt reikninginn
ljúga <hann> fullan
ljúga til um aldur
það er ekki á <hana> logið
það er við því að búast þegar hún á í hlut
→ sjá: loginn lýsingarorð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • ljúga að sjálfum sér
  • ljúga á annan tening en stela á annan
  • ljúga eins og hraðfrétt
  • ljúga eins og landeyða
  • ljúga í eyðurnar
  • ljúga í skörðin
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
lýg
laug
önnur persóna
lýgur
laugst
þriðja persóna
lýgur
laug
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ljúgi
lygi
önnur persóna
ljúgir
lygir
þriðja persóna
ljúgi
lygi
nafnháttur
ljúga
sagnbót
logið
lýsingarháttur nútíðar
ljúgandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
ljúg
ljúgðu
ljúgið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
lýgurðu
laugstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ljúgirðu
lygirðu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
loginn
login
logið
þolfall
loginn
logna
logið
þágufall
lognum
loginni
lognu
eignarfall
logins
loginnar
logins