meining
nafnorð kvenkyn mein-ing
1
það sem manni finnst, skoðun
hann sagði meiningu sína hreinskilnislega
vera með (ákveðnar) meiningar
hafa skoðanir
vera stífur á meiningunni
vera fastur á skoðunum sínum
það eru deildar meiningar um <þetta>
það eru skiptar skoðanir um þetta
2
ætlun, fyrirætlun
hver er meiningin með að læsa okkur úti?
það er meiningin að <mála húsið í sumar>
það er ætlunin að ...
það er engin meining <að vinna allar helgar>
það er lítið vit í því ...
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
meining
meiningin
þolfall
meiningu
meininguna
þágufall
meiningu
meiningunni
eignarfall
meiningar
meiningarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
meiningar
meiningarnar
þolfall
meiningar
meiningarnar
þágufall
meiningum
meiningunum
eignarfall
meininga
meininganna