Yrða

orka

nafnorð kvenkyn
1
afl, kraftur
litlu börnin virðast hafa endalausa orku
við eyddum talsverðri orku í að velja húsgögn
síminn hringdi en hún hafði ekki orku til að standa upp
2
eðlisfræði
eðliseiginleiki (í náttúrunni) til þess að inna vinnu af hendi, táknað með E, mælt í ergum eða júlum
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
  • andleg orka
  • endurnýjanleg orka
  • fullur af orku
  • græn orka
  • neyta allrar orku
  • neyta allrar sinnar orku
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
orka
orkan
þolfall
orku
orkuna
þágufall
orku
orkunni
eignarfall
orku
orkunnar