styrkur
nafnorð karlkyn
1
það að vera sterkur, kraftur, styrkleiki
hann hefur nægan líkamlegan styrk fyrir þessa vinnu
hún hefur verið garðyrkjufélaginu mikill styrkur
hann spilaði vinsæl lög á fullum styrk
2
sérstakt fjárframlag, stuðningur í formi peninga, fjárstyrkur
hann hlaut styrk til að ljúka doktorsprófi
tveir umsækjendur fengu háan styrk
3
efnafræði
magn af efni í vökva, lausn eða lofti
styrkur þessara lofttegunda er mestur í næsta nágrenni við eldstöðina
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
styrkur
styrkurinn
þolfall
styrk
styrkinn
þágufall
styrk
styrknum
eignarfall
styrks
styrksins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
styrkir
styrkirnir
þolfall
styrki
styrkina
þágufall
styrkjum
styrkjunum
eignarfall
styrkja
styrkjanna