punktur
nafnorð karlkyn
1
greinarmerki á eftir setningu, depill (.); depill yfir bókstafnum i
2
afmarkaður staður í tíma eða rúmi
þau stóðu á hæsta punkti tindsins
3
stærðfræði
afmarkaður staður í rúmi, t.d. á línu eða í hnitakerfi
4
atriði, minnisatriði
ég skrifaði hjá mér punkta úr fyrirlestrinum
5
mælieining leturstærðar
níu punkta letur
6
eining sem er notuð til að mæla e-ð (og mörgum slíkum safnað)
fimm punkta námskeið
7
einkum í fleirtölu
inneign sem safnast hjá fyrirtæki, t.d. flugfélagi, verslun eða kaffihúsi
hún safnar punktum hjá versluninni
þetta er punkturinn yfir i-ið
þetta atriði fullkomnar verkið
<passa mataræðið> upp á punkt og prik
gæta mjög nákvæmlega að mataræðinu
Orðasvið og samstæður
rittákn
Samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
punktur
punkturinn
þolfall
punkt
punktinn
þágufall
punkti
punktinum
eignarfall
punkts
punktsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
punktar
punktarnir
þolfall
punkta
punktana
þágufall
punktum
punktunum
eignarfall
punkta
punktanna