ráða
sagnorð
1
þágufall
hafa ákvörðunarvald, stjórna
forstjórinn ræður öllu í fyrirtækinu
ég ræð vinnutíma mínum
þú mátt ráða hvað verður í matinn
við ráðum ekki veðrinu
ráða engu um <þetta>
gjaldkerinn ræður engu um starfsemi bankans
ráða ferðinni
hann lét hestinn ráða ferðinni
ráða lögum og lofum
fara með öll völd
herforingjar ráða lögum og lofum í landinu
ráða ríkjum
vera við völd, vera yfir ríki
konungurinn réð ríkjum í Noregi
ráða úrslitum
hafa úrslitavald um e-ð
við keyptum hornsófann, liturinn á honum réð úrslitum
þú rétt ræður því
(.... ella skaltu hafa verra af)
þú rétt ræður hvort þú segir frá þessu!
2
þágufall
gefa (e-m) ráð, ráðleggingu, heilræði
ég réð honum að fara til læknis
ráða <honum> frá <þessu>
hann ræður mér frá að fara í langa sjóferð
3
þolfall
semja við (e-n) um að hann hefji störf
skólinn ætlar að ráða fjóra nýja kennara
hún réð sig sem þernu hjá drottningunni
ráða <hana> í vinnu
ráða <fólk> til starfa
4
þolfall
finna lausn á, leysa (þraut, krossgátu o.s.frv.)
hann gat ekki ráðið gátuna
hún ræður stundum drauma fyrir fólk
ráða í <skriftina>
5
þolfall
ráða <þetta> af <orðum hans>
álykta þetta af orðum hans
6
ráða sér ekki
vera ofsakátur (reiður)
börnin réðu sér ekki fyrir gleði
7
þolfall
ráða + af
ráða <hann> af dögum
(láta) myrða hann
forsetinn var ráðinn af dögum árið 1980
8
ráða + fram úr
ráða fram úr <erfiðleikunum>
fleyta sér fram úr erfiðleikunum
9
ráða + fyrir
ráða fyrir <landinu>
hafa yfirráð, ríkja yfir landinu
Spánverjar réðu fyrir miklum flota
10
ráða + við
ráða við <andstæðinginn>
vera jafnsterkur eða sterkari en andstæðingurinn
hann ræður vel við hinn strákinn og er ekkert hræddur
ráða við <starfið>
hafa vald á starfinu
nemendurnir ráða ekki við svona erfið dæmi
11
ráða + yfir
hafa yfir að ráða/ráða yfir <góðum tækjabúnaði>
hafa umráð yfir, aðgang að, rétt á, eignarhald á (e-u)
hún ræður yfir miklum auðæfum sem aðalerfinginn
fyrirtækið ræður yfir frábæru starfsfólki
Orðasvið og orðasambönd
stjórn
Orðasambönd
- eftir öllum veðurmerkjum að ráða
- eiga úr vöndu að ráða
- eiga vant úr vöndu að ráða
- eins og að líkindum ræður
- eins og að líkum ræður
- fá ekki við neitt ráðið
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ræð
réðréði
önnur persóna
ræður
réðstréðir
þriðja persóna
ræður
réðréði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráðum
réðum
önnur persóna
ráðið
réðuð
þriðja persóna
ráða
réðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ræðst
réðst
önnur persóna
ræðst
réðst
þriðja persóna
ræðst
réðst
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráðumst
réðumst
önnur persóna
ráðist
réðust
þriðja persóna
ráðast
réðust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráði
réði
önnur persóna
ráðir
réðir
þriðja persóna
ráði
réði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráðum
réðum
önnur persóna
ráðið
réðuð
þriðja persóna
ráði
réðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráðist
réðist
önnur persóna
ráðist
réðist
þriðja persóna
ráðist
réðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ráðumst
réðumst
önnur persóna
ráðist
réðust
þriðja persóna
ráðist
réðust
nafnháttur
ráða
sagnbót
ráðið
lýsingarháttur nútíðar
ráðandi
nafnháttur
ráðast
sagnbót
ráðist
lýsingarháttur nútíðar
ráðandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
ráð
ráddu
ráðið
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
ráðstu
ráðist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ræðurðu
réðsturéðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ráðiði
réðuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ráðirðu
réðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ráðiði
réðuði
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ræðstu
réðstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
ráðistu
réðistu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
ráðinn
ráðin
ráðið
þolfall
ráðinn
ráðna
ráðið
þágufall
ráðnum
ráðinni
ráðnu
eignarfall
ráðins
ráðinnar
ráðins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
ráðnir
ráðnar
ráðin
þolfall
ráðna
ráðnar
ráðin
þágufall
ráðnum
ráðnum
ráðnum
eignarfall
ráðinna
ráðinna
ráðinna