ráð
nafnorð hvorugkyn
1
það sem er ráðlagt, ráðlegging
fara að ráði/ráðum <sérfræðinga>
spyrja <hana> ráða
<hjálpa honum> með ráðum og dáð
2
lausn á vanda, leið til lausnar, úrræði
bregða á það ráð að <loka veginum>
hafa ráð undir rifi hverju
hvað er til ráða?
kunna ráð við <vandanum>
ráð gegn/við <sjúkdómnum>
3
það sem er ætlunin að gera, ráðagerð, fyrirætlun
hafa <hana> með í ráðum
leggja á ráðin
taka ráðin af <honum>
taka til sinna ráða
vera í ráðum með <honum>
það varð að ráði að <hittast á barnum>
<koma of seint> af ásettu ráði
<þetta> er með ráðum gert
<þau> ráða ráðum sínum
4
hópur sem talar saman, nefnd
ráðið mun fjalla um samninginn á morgun
bæta ráð sitt
bæta fyrri hegðun sín og afglöp
ekki er ráð nema í tíma sé tekið
best er að gera hlutina tímanlega
fara illa að ráði sínu
gera rangt, sýna ranga hegðun
festa / staðfesta ráð sitt
fá sér maka, giftast
gera ráð fyrir <rigningu>
búast við rigningu
hafa (ekki) ráð á <nýrri þvottavél>
hafa (ekki) efni á ...
hafa ráð <hans> í hendi sér
stjórna afdrifum hans
rasa (ekki) um ráð fram
sýna (ekki) fljótfærni
vera ekki með réttu ráði
vera bilaður á geði
vita ekki sitt rjúkandi ráð
vera alveg ráðalaus
nú eru góð ráð dýr
vandi steðjar að
<morð> að yfirlögðu ráði
morð framið vísvitandi
<uppfylla kröfurnar> eins og lög gera ráð fyrir
... eins og lög (reglur) kveða á um
Orðasvið og samstæður
úrræði
Samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
ráð
ráðið
þolfall
ráð
ráðið
þágufall
ráði
ráðinu
eignarfall
ráðs
ráðsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
ráð
ráðin
þolfall
ráð
ráðin
þágufall
ráðum
ráðunum
eignarfall
ráða
ráðanna