Yrða

reikningur

nafnorð karlkyn reikn-ingur
1
það að reikna, stærðfræði
hann æfir sig í reikningi á kvöldin
2
blað þar sem stendur hvað beri að borga fyrir vörur og viðskipti, staðfesting á viðskiptum
málarinn ætlar að senda reikning
hún borgaði reikninginn á veitingastaðnum
3
skráð viðskipti hjá fyrirtæki
vera í reikningi <þar>
4
bankareikningur
5
tölvur
skráðar upplýsingar um einstakan notanda í tölvukerfi, með sérstöku notandanafni, lykilorði o.þ.h., t.d. í banka og vefverslun
gera upp reikningana við <hana>
gera upp sakir við hana
skrifa <þetta> á <hans> reikning
telja hann bera ábyrgðina
taka <þetta> með í reikninginn
reikna með því, taka tillit til þess
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
reikningur
reikningurinn
þolfall
reikning
reikninginn
þágufall
reikningi
reikningnum
eignarfall
reiknings
reikningsins