samfella
nafnorð kvenkyn sam-fella
1
samhengi, það sem tengist eða á saman
mýrasvæðin mynda eina stóra samfellu
í bókinni er góð samfella milli ólíkra kafla
2
kvenundirflík þar sem brjóstahald og nærbuxur mynda eina heild
3
nærfatnaður ungbarna þar sem nærbolur og -buxur mynda eina heild
4
pils notað við faldbúning eða skautbúning, á faldbúningi eru bryddingar líkt og svuntubrúnir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
samfella
samfellan
þolfall
samfellu
samfelluna
þágufall
samfellu
samfellunni
eignarfall
samfellu
samfellunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
samfellur
samfellurnar
þolfall
samfellur
samfellurnar
þágufall
samfellum
samfellunum
eignarfall
samfellnasamfella
samfellnannasamfellanna