Yrða

sami

fornafn
óákveðið fornafn
1
sérstætt
nákvæmlega sá eða það sem þegar var rætt um eða vísað til
kennarinn var sá sami og hafði kennt bróður þeirra
verkefnin eru hin sömu og áður en aðstaðan er betri
það sama á við í flestum fjölskyldum
flugvöllurinn þar var lokaður vegna veðurs og sama gilti um næsta flugvöll
2
hliðstættnafnorðið (oftast) án greinis
(oft í e.k. samanburði eða samjöfnuði) nákvæmlega sá eða það sem áður hefur verið minnst á eða vísað til
sami stíll hentar ekki öllum
yngstu börnin okkar eru á sama aldri
þau búa í miðbænum og eru með vinnustofu í sama húsi
þú átt að endurtaka sömu æfinguna tíu sinnum
í sama mund
um leið, á sama andartaki
hún stóð upp og í sama mund var bankað á dyrnar
í sömu svipan
um leið, á sama andartaki
í sömu svipan voru dyrnar opnaðar
→ sjá: samur fornafn
Fallbeygingar
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
sami
sama
sama
þolfall
sama
sömu
sama
þágufall
sama
sömu
sama
eignarfall
sama
sömu
sama