samur
fornafn
óákveðið fornafn
sérstættoftast með neitun
hinn sami, óbreyttur
aðstæður okkar urðu ekki samar eftir breytingarnar
götumyndin er ekki söm og áður
vera <ekki> samur (maður)
vera breyttur (maður), jafna sig ekki fullkomlega
hann var aldrei samur maður eftir slysið
á samri stundu
á sama augnabliki, strax
á samri stundu blossaði eldurinn upp
í samt horf
í sama ástand
starfsemin var að komast í samt horf og áður
í samt lag
í sama form eða ástand
þau eru að taka til og bráðum verður allt komið í samt lag
→ sjá: sami fornafn
Fallbeygingar
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
samur
söm
samt
þolfall
saman
sama
samt
þágufall
sömum
samri
sömu
eignarfall
sams
samrar
sams
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
samir
samar
söm
þolfall
sama
samar
söm
þágufall
sömum
sömum
sömum
eignarfall
samra
samra
samra