Yrða

setja

sagnorð
1
þolfall
koma (e-u) fyrir (e-s staðar)
hann setti bókina á borðið
setjið deigið í kringlótt kökuform
ég reyndi að setja mig í spor hennar
2
þágufall/þolfall
leggja (e-ð) fram (fyrir e-n)
hún setti honum úrslitakosti
sett eru ákveðin skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu
3
þágufall/þolfall
stefna að (e-u), ákveða (e-ð)
fyrirtækið setur sér markmið í upphafi hvers árs
4
hefja, opna (skóla, ráðstefnu, fund)
skólinn verður settur í næstu viku
formaðurinn setti ráðstefnuna
5
(um lög, reglur) gera, koma í framkvæmd
lög voru sett um vinnutíma sjómanna
6
setjum svo
gefum okkur þessa forsendu
setjum svo að hótelið verði fullt, hvað þá?
sjáum hvað setur
sjáum til hvað verður
7
þolfall
<hana> setur hljóða
hún verður þögul, hún þegir
fundarmenn setti hljóða þegar þeir sáu uppgjör ársins
8
setja + að
það setur að <mér> <hroll>
ég fyllist hrolli
það setti að henni óhug þegar hún sá hann
9
þolfall
setja + af
setja <ráðherrann> af
taka hann úr embætti
ráðherrann var settur af
10
þolfall
setja + á
setja <símanúmerið> á sig
festa það í minni sér
setja á fót <verslun>
stofna verslun, búð
setja á laggirnar <fyrirtæki>
stofna fyrirtæki
setja á stofn <bílaverkstæði>
stofna bílaverkstæði
11
þolfall
setja + fram
a
setja fram <kenningu>
koma með og birta kenningu
Darwin setti fram kenningu um þróun mannsins
b
setja fram bát
koma báti á flot
12
setja + fyrir
a
þágufall
setja <nemandanum> fyrir <tvo kafla>
láta hann læra heima tvo kafla
b
þolfall
setja <þetta> ekki fyrir sig
finnast þetta í lagi, líta ekki á þetta sem vandmál
hann setur það ekki fyrir sig þótt baðherbergið sé á næstu hæð
13
þolfall
setja + hjá
setja <hana> hjá
hafa hana afskipta, útundan
14
þolfall
setja + inn í
setja <hana> inn í <starfið>
kenna henni starfið, veita henni fræðslu um starfið
setja sig inn í <deilumálið>
kynna sér deilumálið
15
þolfall
setja + í
setja <hana> í að <vaska upp>
fela henni það verkefni að vaska upp
elstu börnin voru sett í að raða stólunum
16
þolfall
setja + niður
a
setja niður <kartöflur>
láta kartöflur í mold
b
setja <þetta> niður fyrir sér
skipuleggja þetta í huganum
17
setja + ofan í
setja ofan í við <hana>
veita henni ákúrur, álasa henni
18
þolfall
setja + saman
setja saman <bókaskápinn>
skrúfa hann saman
→ sjá: samsettur lýsingarorð
19
þolfall
setja + upp
a
setja upp <leiksýningu>
koma leikriti á svið
b
setja upp <ákveðið verð>
krefjast þess að fá ákveðið verð
eigandi bílsins setur upp hátt verð
→ sjá: uppsettur lýsingarorð
c
setja upp <tölvuforrit>
koma forriti fyrir í tölvu
20
setja + út á
setja út á <vinnubrögð hans>
finna að vinnubrögðum hans, gagnrýna þau
→ sjá: setjast sagnorð, sestur lýsingarorð, settur lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
set
setti
önnur persóna
setur
settir
þriðja persóna
setur
setti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
setji
setti
önnur persóna
setjir
settir
þriðja persóna
setji
setti
nafnháttur
setja
sagnbót
sett
lýsingarháttur nútíðar
setjandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
set
settu
setjið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
seturðu
settirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
setjirðu
settirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þolfalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
setur
setti
önnur persóna
setur
setti
þriðja persóna
setur
setti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
setji
setti
önnur persóna
setji
setti
þriðja persóna
setji
setti
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
setur
setti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
setji
setti
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
settur
sett
sett
þolfall
settan
setta
sett
þágufall
settum
settri
settu
eignarfall
setts
settrar
setts