Yrða

setjast

sagnorð miðmynd
1
koma sér fyrir á stól, fá sér sæti
gerið svo vel að setjast
hún settist í sófann
gestirnir settust við borðið
ég settist upp í rúminu
setjast niður
gott var að setjast niður eftir erfiði dagsins
2
lenda á hlut eða jörðinni (um fugl, skordýr, þyrlu eða smáflugvél)
fuglinn sest á stein
fiðrildið settist á blómið
3
(um sólina) hníga til viðar
sólin var að setjast
4
falla til botns (t.d. á árbotn)
grugg hefur sest á botn vínflöskunnar
5
setjast + að
a
setjast að <þar>
taka sér bólfestu þar, fara að búa þar
landnámsmenn settust að á Íslandi
b
setjast að <tafli>
fá sér sæti og fara að tefla
blaðamaðurinn settist að spjalli við söngkonuna
6
setjast + upp
a
setjast upp
reisa sig upp úr liggjandi stöðu
hún vaknaði og settist upp í rúminu
b
setjast upp <hjá þeim>
dvelja hjá þeim og vera lengi
7
setjast + yfir
setjast yfir <bókhaldið>
leggjast yfir, skoða bókhaldið, rýna í það
→ sjá: setja sagnorð, sestur lýsingarorð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
seta
stellingarbreyting
Samstæður
Orðasambönd
  • eins og kría sest á stein
  • eins og þegar kría sest á stein
  • sól sest í æginn
  • sólin sest
  • vera eins og þegar kría sest á stein
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
sest
settist
önnur persóna
sest
settist
þriðja persóna
sest
settist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
setjist
settist
önnur persóna
setjist
settist
þriðja persóna
setjist
settist
nafnháttur
setjast
sagnbót
sest
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
sestu
setjist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
sestu
settistu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
setjistu
settistu