skömm
nafnorð kvenkyn
1
smán, vansæmd
verða <sér> til skammar
það er skömm að þessu
<þetta veggjakrot> er til skammar
2
skammaryrði, oft í samsetningum
kattarskömmin
skömmin hann <Palli>
bíta höfuðið af skömminni
bæta gráu ofan á svart, gerast enn ósvífnari
fá skömm í hattinn
vera sneyptur fyrir eitthvað
gera <honum> skömm til
fá einhvern til að skammast sín (sökum ódugnaðar), standa sig betur en einhver
hafa skömm á <svona framkomu>
fyrirlíta <svona framkomu>
lenda í skömm með <verkefnið>
verða smánarlega seinn <með verkefnið>
vita upp á sig skömmina
hafa slæma samvisku
<eitthvað> er skömminni skárra
vondur kostur er heldur betri en annar enn verri
<gera þetta> af skömmum sínum
gera eitthvað (óhæfilegt) öðrum til stríðni eða skapraunar
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
niðurlæging / smán
skömmusta
Orðasambönd
- að skömminni til
- af skömmum sínum
- bíta höfuðið af skömminni
- fá ódeildar skammir
- fá skammir
- fá skammir yfir sig
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
skömm
skömmin
þolfall
skömm
skömmina
þágufall
skömm
skömminni
eignarfall
skammar
skammarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
skammir
skammirnar
þolfall
skammir
skammirnar
þágufall
skömmum
skömmunum
eignarfall
skamma
skammanna