stinga
sagnorð
1
þolfall
reka e-ð oddhvasst í e-ð
hún stingur nálinni í efnið
hann stakk gafflinum í kjötið
hann var stunginn af geitungi
stinga sig
ég stakk mig á kaktus
2
þágufall
láta, setja (e-ð einhvers staðar)
ég stakk miðanum í vasann
hún stingur bréfinu í póstkassann
hann stakk brauðsneiðum í brauðristina
selurinn stingur hausnum upp úr sjónum
stinga <pennanum> á sig
setja hann inn á sig, í vasann
stinga <brjóstsykursmola> upp í sig
láta hann í munninn á sér
3
þolfall
valda (e-m) kláða
þessi ullarpeysa stingur
4
þágufall
stinga sér
stökkva út í vatn
krakkarnir stungu sér í sundlaugina
stinga sér til sunds
5
þolfall
<þetta> stingur <mig>
ég tek eftir þessu
það stakk mig hvað hann var kærulaus
6
þágufall
stinga + að
stinga <þessu> að <henni>
benda henni á þetta (stuttlega)
hún stakk því að mér að sækja um þennan styrk
7
stinga + af
stinga af
láta sig hverfa, flýja
þjófarnir stungu af með ránsfenginn
hún stakk af úr samkvæminu
8
stinga + á
stinga á sig <peningunum>
setja peningana í vasann
þjófurinn stakk á sig fimm sígarettupökkum
stinga á <kýlinu>
gera gat á kýlið (til að hleypa út vessa)
9
þágufall
stinga + inn
stinga <honum> inn
setja hann í fangelsi
10
stinga + niður
þágufallstinga niður <túlípanalaukum>
setja túlípanalauka í mold
<flensan> stingur sér niður
flensu verður vart
11
þágufall
stinga + undan
stinga <peningunum> undan
hún var kærð fyrir að stinga undan fé fyrirtækisins
12
þolfall
stinga + upp
stinga upp <kálgarðinn>
losa sundur moldina í kálgarðinum með skóflu eða gaffli
13
stinga + upp á
stinga upp á <þessu>
koma með þessa tillögu, uppástungu, leggja þetta til
þær stungu upp á gönguferð í skóginum
14
þágufall
stinga + upp í
stinga <jarðarberi> upp í sig
láta það í munninn á sér
ég stakk upp í mig súkkulaðimola
15
stinga + út
a
stinga út <smákökur>
móta smákökur með glasi eða formi
b
stinga út úr <fjárhúsinu>
moka skít út úr fjárhúsinu
16
stinga við
stinga við
vera haltur, haltra
hann stingur við eins og hann hafi meitt sig
stinga saman nefjum
tala saman einslega
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
sting
stakk
önnur persóna
stingur
stakkst
þriðja persóna
stingur
stakk
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingum
stungum
önnur persóna
stingið
stunguð
þriðja persóna
stinga
stungu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingst
stakkst
önnur persóna
stingst
stakkst
þriðja persóna
stingst
stakkst
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingumst
stungumst
önnur persóna
stingist
stungust
þriðja persóna
stingast
stungust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingi
styngi
önnur persóna
stingir
styngir
þriðja persóna
stingi
styngi
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingum
styngjum
önnur persóna
stingið
styngjuð
þriðja persóna
stingi
styngju
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingist
styngist
önnur persóna
stingist
styngist
þriðja persóna
stingist
styngist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stingumst
styngjumst
önnur persóna
stingist
styngjust
þriðja persóna
stingist
styngjust
nafnháttur
stinga
sagnbót
stungið
lýsingarháttur nútíðar
stingandi
nafnháttur
stingast
sagnbót
stungist
lýsingarháttur nútíðar
stingandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
sting
stingdu
stingið
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
stingstu
stingist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingurðu
stakkstu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingiði
stunguði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingirðu
styngirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingiði
styngjuði
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingstu
stakkstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stingistu
styngistu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
stunginn
stungin
stungið
þolfall
stunginn
stungna
stungið
þágufall
stungnum
stunginni
stungnu
eignarfall
stungins
stunginnar
stungins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
stungnir
stungnar
stungin
þolfall
stungna
stungnar
stungin
þágufall
stungnum
stungnum
stungnum
eignarfall
stunginna
stunginna
stunginna