stofn
nafnorð karlkyn
1
hinn harði, upprétti hluti trés, trjástofn
2
grundvöllur, undirstaða
1400 áskrifendur eru góður stofn fyrir væntanlegan útgefanda að byggja á
að stofni til
lögin eru að stofni til frá 1954
3
líffræði/vistfræði
hópur lífvera sömu tegundar á afmörkuðu svæði sem venjulega æxlast innbyrðis
50 hænsni af sama stofni
4
málfræði
orð án beygingarendingar, orðstofn
setja á stofn <verslun>
stofna verslun
þau settu á stofn sjóð til styrktar háskólanemum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
stofn
stofninn
þolfall
stofn
stofninn
þágufall
stofni
stofninum
eignarfall
stofns
stofnsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
stofnar
stofnarnir
þolfall
stofna
stofnana
þágufall
stofnum
stofnunum
eignarfall
stofna
stofnanna