vandamál
nafnorð hvorugkyn vanda-mál
eitthvað sem veldur vandræðum, erfitt málefni, erfiðleiki
það þarf að skilgreina vandamálið vel
hún notaði hugmyndaflugið til að leysa vandamálið
fordómar hans eru alvarlegt vandamál
eiga við vandamál að stríða
félagsleg vandamál
það er ekki/ekkert vandamál að <ferðast innanbæjar>
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
- félagsleg vandamál
- geðræn vandamál
- lausn vandamála
- óleyst vandamál
- úrlausn vandamála
- vandamál þriðja heimsins
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
vandamál
vandamálið
þolfall
vandamál
vandamálið
þágufall
vandamáli
vandamálinu
eignarfall
vandamáls
vandamálsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
vandamál
vandamálin
þolfall
vandamál
vandamálin
þágufall
vandamálum
vandamálunum
eignarfall
vandamála
vandamálanna