Yrða

viðbót

nafnorð kvenkyn við-bót
það sem bætt er við eitthvað
verslunin er góð viðbót við hverfið
í viðbót
að auki
mig vantar tvo metra af snæri í viðbót
síðari tíma viðbót
turninn er ekki frá tímum Rómverja, heldur síðari tíma viðbót
til viðbótar
þar að auki, að auki
hann keypti tvö epli til viðbótar
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
viðbót
Orðasambönd
  • í viðbót
  • til viðbótar
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
viðbót
viðbótin
þolfall
viðbót
viðbótina
þágufall
viðbót
viðbótinni
eignarfall
viðbótar
viðbótarinnar