Yrða

von

nafnorð kvenkyn
það sem maður vonar, tilfinning óskar
binda vonir við <nýja skólastjórann>
gera sér vonir um <góðan árangur>
gefa upp alla von
halda í vonina
lifa í voninni
eiga sér einskis ills von
vera grunlaus um að eitthvað illt sé í aðsigi
eiga sér ekki viðreisnar von
eiga enga möguleika framar
eiga von á barni
vera ófrísk
eiga von á sér <um mánaðamótin>
eiga að fæða barn um mánaðarmótin
eiga von á <gestum>
búast við gestum
vera úrkula vonar
vera búinn að missa alla von
það er borin von að <við fáum peningana aftur>
það eru ekki miklar líkur á að við fáum peningana aftur
það er ekki von á góðu
horfurnar eru slæmar
það er ekki öll von úti
það eru enn dálitlir möguleikar
það er von að <hún sé glöð>
það er ástæða fyrir því að hún er glöð
það getur brugðið til beggja vona
það er ekki vitað hvernig þetta fer
það standa vonir til þess að <húsbyggingunni verði lokið eftir mánuð>
menn vonast eftir því að húsbyggingunni verði lokið eftir mánuð
<hann er> að vonum <áhyggjufullur>
hann er að sjálfsögðu, eðlilega áhyggjufullur
<hafa staðið sig> framar vonum
hafa staðið sig betur en búist var við
<kaupa hlutabréf> í von um <að gengið hækki>
kaupa hlutabréf í þeirri fullvissu að gengið hækki
<bíða> milli vonar og ótta
bíða í algjörri óvissu
<taka með snæri> til vonar og vara
taka snæri með til öryggis
<leggja af stað> upp á von og óvon
leggja af stað þótt ekki sé vitað hvort maður nái takmarkinu
<ákvörðunin dróst> von úr viti
ákvörðunin dróst óeðlilega lengi
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
  • að vonum
  • á von og vara
  • bíða milli vonar og ótta
  • brostnar vonir
  • eftir vonum
  • eiga ekki uppreistar von
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
von
vonin
þolfall
von
vonina
þágufall
von
voninni
eignarfall
vonar
vonarinnar