Yrða

yfirborð

nafnorð hvorugkyn yfir-borð
1
ysta eða efsta lag e-s
yfirborð vegarins er óslétt
loftbólur stigu upp á yfirborðið
fiskarnir synda nálægt yfirborðinu
yfirborð jarðar
hann virtist vera horfinn af yfirborði jarðar
2
e-ð sem er sýnilegt, sýnilegur hluti e-s
hann var hrjúfur á yfirborðinu
á yfirborðinu var allt í lagi í hjónabandinu
<fordómar> koma upp á yfirborðið
fordómar koma í ljós
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • að yfirborðinu
  • að yfirborðinu til
  • á yfirborði
  • á yfirborðinu
  • bera yfirborð
  • hafa yfirborðið
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
yfirborð
yfirborðið
þolfall
yfirborð
yfirborðið
þágufall
yfirborði
yfirborðinu
eignarfall
yfirborðs
yfirborðsins