Yrða

örlög

nafnorð hvorugkyn fleirtala ör-lög
fyrirfram ákveðinn atburður eða lífshlaup
gamli báturinn hlaut dapurleg örlög
örlögin virtust ekki hafa ætlað honum að flytja aftur heim í sveitina
mæta örlögum sínum
horfast í augu við dauðann, deyja
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
örlög
Orðasambönd
  • bíða örlaga sinna
  • fyrir gráglettni örlaga
  • fyrir kaldhæðni örlaganna
  • fyrir örlög fram
  • ganga örlögunum á vald
  • gráglettni örlaganna
Fallbeygingar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
örlög
örlögin
þolfall
örlög
örlögin
þágufall
örlögum
örlögunum
eignarfall
örlaga
örlaganna