útkoma
nafnorð kvenkyn út-koma
1
niðurstaða t.d. úr reikningsdæmi
útkoman úr þrír mínus tveir er einn
formaðurinn er óánægður með útkomuna úr kosningunum
2
árangur
við lögðum flísar á gólfið og útkoman er mjög skemmtileg
3
það að bók eða blað kemur út
útkomu bókarinnar var fagnað með veislu
Orðasvið og samstæður
niðurstaða
Samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
útkoma
útkoman
þolfall
útkomu
útkomuna
þágufall
útkomu
útkomunni
eignarfall
útkomu
útkomunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
útkomur
útkomurnar
þolfall
útkomur
útkomurnar
þágufall
útkomum
útkomunum
eignarfall
útkomaútkomna
útkomannaútkomnanna