andi
nafnorð karlkyn
1
andardráttur, öndunarloft, öndun
draga andann
grípa andann á lofti
halda niðri í sér andanum
2
ósýnileg, yfirnáttúrleg vera
andar framliðinna voru á sveimi
andinn kemur yfir <hana>
heilagur andi
illur andi
óhreinn andi
3
hugur, hugsun
ég sé hana í anda halda ræðu
vera brennandi í andanum
vera ungur í anda
4
sá blær sem ríkir í samskiptum, blær samkomulags eða ósamkomulags, andrúmsloft
hér er ágætur andi
það var slæmur andi á vinnustaðnum
5
samræmi, samhljómur
skólinn starfar enn í anda stofnanda hans
gefa upp andann
gefa upp öndina, deyja
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
andi
andinn
þolfall
anda
andann
þágufall
anda
andanum
eignarfall
anda
andans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
andar
andarnir
þolfall
anda
andana
þágufall
öndum
öndunum
eignarfall
anda
andanna