blaðra
nafnorð kvenkyn
1
leikfang sem er loftfylltur gúmmíbelgur, gjarnan í skærum litum
2
loftfylltur belgur eða bóla
hann blés blöðru úr tyggigúmmíinu
3
bóla á líkamanum full af lofti eða vessa, t.d. vegna særinda á fótum eða eftir brunasár
hún var með blöðru á hælnum
4
þvagblaðra
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
blaðra
blaðran
þolfall
blöðru
blöðruna
þágufall
blöðru
blöðrunni
eignarfall
blöðru
blöðrunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
blöðrur
blöðrurnar
þolfall
blöðrur
blöðrurnar
þágufall
blöðrum
blöðrunum
eignarfall
blaðra
blaðranna