Yrða

brenna1

sagnorð
1
taka eld, eyðast í eldi
pappírinn brennur
húsið brann til grunna
eldspýtan brann upp
brenna til kaldra kola
brenna alveg upp
2
gefa frá sér eld, loga
eldur brennur í arninum
eldurinn brann í augum hans
3
vera heitur, ákafur
ástin brennur í brjósti hans
ég brenn af óþolinmæði
4
brenna + á
<spurningin> brennur á <mér>
spurningin er áleitin, mig dauðlangar að bera hana upp
5
þolfall/þágufall
brenna + fyrir
brenna fyrir <þetta/þessu>
hafa mikinn áhuga á þessu, gefa sig allan í þetta
6
brenna + út
a
<kertið> brennur út
kertið brennur upp til agna, eyðist
b
brenna út
verða þurrausinn í starfi, missa neistann
hann kenndi við menntaskólann þar til hann brann alveg út
7
brenna + við
brenna við
ofhitna í potti og festast við botninn
sósan er brunnin við
það vill brenna við að <öryggi sé ónógt>
það vill henda, það kemur stundum fyrir að ...
láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna
vera hugaður, kaldur, kjarkmikill
→ sjá: brenna2 sagnorð, brunninn lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brenn
brann
önnur persóna
brennur
brannst
þriðja persóna
brennur
brann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brenni
brynni
önnur persóna
brennir
brynnir
þriðja persóna
brenni
brynni
nafnháttur
brenna
sagnbót
brunnið
lýsingarháttur nútíðar
brennandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
brenn
brenndu
brennið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
brennurðu
brannstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
brennirðu
brynnirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brennur
brann
önnur persóna
brennur
brann
þriðja persóna
brennur
brann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brenni
brynni
önnur persóna
brenni
brynni
þriðja persóna
brenni
brynni
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
brennur
brann
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
brenni
brynni
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
brunninn
brunnin
brunnið
þolfall
brunninn
brunna
brunnið
þágufall
brunnum
brunninni
brunnu
eignarfall
brunnins
brunninnar
brunnins