Yrða

brestur

nafnorð karlkyn
1
brakandi hljóð
það heyrast háir brestir í bálinu
brak og brestir
vagnarnir ruku áfram með braki og brestum
það kveður við brestur
það heyrist hljóð eins og þegar ís eða plast springur
2
galli, veikleiki
láttu bresti náunga þíns verða þér víti til varnaðar
3
sprunga, rifa
hann sá enga bresti í ísnum
það kom brestur í skálina
4
gamalt
skortur, vöntun
berja í brestina
laga gallana, bæta það sem er ekki í lagi
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
brestur
bresturinn
þolfall
brest
brestinn
þágufall
bresti
brestinum
eignarfall
brests
brestsins