einangrun
nafnorð kvenkyn
1
það að vera sambandlaus við aðra, einsemd
einangrun byggðarlagsins er mikil á veturna
vera í einangrun
sjúklingurinn er hafður í einangrun til að koma í veg fyrir smit
fanginn var í einangrun í þrjár vikur
2
það að einangra, draga úr áhrifum kulda og hljóðs
frauðplast er notað til einangrunar
3
einangrandi efni notað í byggingar, einangrunarefni
það er einangrun utan um heitavatnsrörin
Orðasvið og samstæður
einvera
- einvera
- , fásinni
- , einbúi
- , einsetumaður
- , einförull
- , einseta
einangrun
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
einangrun
einangrunin
þolfall
einangrun
einangrunina
þágufall
einangrun
einangruninni
eignarfall
einangrunar
einangrunarinnar