faðir
nafnorð karlkyn
1
karlkyns foreldri e-s
2
forfaðir
3
guð kristinna manna
4
frumkvöðull, upphafsmaður, stofnandi
safnast til feðra sinna
deyja
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
faðerni
- barnsfaðir
- , faðerni
- , barnsfaðerni
- , feðerni
fjölskylda / fjölskylduhagir
Orðasambönd
- einstæður faðir
- forsjárlaus faðir
- guð faðir
- heilagur faðir
- himneskur faðir
- hinn heilagi faðir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
faðir
faðirinn
þolfall
föður
föðurinn
þágufall
föður
föðurnum
eignarfall
föður
föðurins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
feður
feðurnir
þolfall
feður
feðurna
þágufall
feðrum
feðrunum
eignarfall
feðra
feðranna