fjarlægð
nafnorð kvenkyn fjar-lægð
1
millibilið milli tveggja staða, vegalengd
fjarlægðin milli þorpanna er 5 km
listasafnið er í tíu mínútna fjarlægð héðan
2
löng vegalengd, fjarski
hann sá skipið úr fjarlægð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
fjarlægð
Samstæður
Orðasambönd
- halda sig í hæfilegri fjarlægð
- í bláma fjarlægðar
- í blámóðu fjarlægðar
- í hvítri fjarlægð
- úr nágrennd sem fjarlægð
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
fjarlægð
fjarlægðin
þolfall
fjarlægð
fjarlægðina
þágufall
fjarlægð
fjarlægðinni
eignarfall
fjarlægðar
fjarlægðarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
fjarlægðir
fjarlægðirnar
þolfall
fjarlægðir
fjarlægðirnar
þágufall
fjarlægðum
fjarlægðunum
eignarfall
fjarlægða
fjarlægðanna