standa
sagnorð
1
vera kyrr í uppréttri stöðu
hún stendur í dyragættinni
þau stóðu við gluggann
hann hefur staðið hér í 20 mínútur
standa á fætur
standa upp
2
vera byggt, reist, sett (e-s staðar)
húsið stendur við árbakkann
styttan stendur á miðju torginu
tvær skálar stóðu á borðinu
jólatréð stóð úti á miðju gólfi
3
vera skrifað eða prentað
hvað stendur á skiltinu?
ég las þetta í dagblaðinu, þetta stóð þar
4
skaga út eða fram
fætur hennar stóðu út undan sænginni
hár hans stóð út í allar áttir
láta hendur standa fram úr ermum
sýna dugnað
5
taka yfir tiltekinn tíma, vara
veislan stóð fram á nótt
ráðstefnan stendur ennþá
6
vera í gildi, óhaggað
tilboðið stendur í þrjá daga
7
(um veður og vind) geisa, ríkja, vera á
vindurinn stendur af austri
óveðrið hefur staðið í tvo daga
8
um aðstöðu, traustleika
standa höllum fæti
vera í slæmri aðstöðu
fyrirtækið stóð höllum fæti á þeim tíma
standa vel að vígi
vera í góðri aðstöðu
<listasafnið> stendur á gömlum merg
<fyrirtækið> stendur traustum fótum
9
standa sig <vel>
sýna <góða> frammistöðu, ná <góðum> árangri
hann hefur staðið sig ágætlega í starfinu
við stöndum okkur ekki nógu vel í endurvinnslunni
10
þágufall
(um karlmann) vera með kynferðislega stinningu
honum stendur
11
standa + að
a
standa að <listsýningunni>
skipuleggja og/eða framkvæma hana
nemendafélag skólans stóð að söngleiknum
b
standa <honum> að baki
vera síðri en hann
þessi skáldsaga stendur hinni langt að baki
c
standa <hana> að verki
koma að henni við e-ð óleyfilegt
innbrotsþjófarnir voru staðnir að verki í íbúðinni
12
standa + af
standa af sér <óveðrið>
bíða eftir að óveðrinu sloti
fyrirtækið hefur staðið af sér miklar þrengingar
13
standa + á
a
hvernig stendur á <þessu>?
af hverju er þetta svona, hvernig víkur þessu við?
hvernig stóð á því að fundinum var frestað?
<þannig> stendur á <því>
því er þannig háttað
b
<mér> stendur á sama
mér er sama (um e-ð)
honum stóð á sama þótt íbúðin væri lítil
c
standa fast á <þessu>
halda eindregið fram þessari ákveðnu skoðun
d
það stendur <þannig> á
aðstæður eru þannig
það stendur <illa> á fyrir <mér>
þetta er óhentugt fyrir mig
eins og stendur / eins og er
eins og sakir standa, eins og er, í augnablikinu, einmitt núna
forstjórinn er upptekinn eins og stendur
e
láta ekki á sér standa
láta ekki bíða eftir sér
það stendur á <svari>
svarið lætur bíða eftir sér
það stendur ekki á <mér>
það er engin töf mín vegna, ég er tilbúinn
ekki stóð á mönnum að veita aðstoð sína
14
standa + á bak við
standa á bak við <þessi áform>
vera upphafsmaður þessara áforma
ekki er vitað hverjir stóðu á bak við sprengjutilræðið
15
standa + frammi fyrir
standa frammi fyrir <miklum vanda>
þurfa að glíma við mikinn vanda
16
standa + fyrir
standa fyrir <tónleikunum>
skipuleggja tónleikana, hafa veg og vanda af þeim
17
standa + gegn
standa gegn <þessari hugmynd>
vera á móti henni, leggjast gegn henni
18
standa + hjá
standa hjá
standa og aðhafast ekkert
þeir stóðu bara hjá og horfðu á áflogin
19
standa + í
a
standa í <húsbyggingu>
fást við húsbyggingu (e-ð sem útheimtir orku og tíma)
standa í stappi
eiga í veseni, deilu
standa í stórræðum
vera með mikið verkefni eða mikla framkvæmd
b
<bitinn> stendur í <honum>
bitinn er fastur í hálsinum á honum
20
standa + með
standa með <henni>
halda með henni, taka málstað hennar
hún hefur alltaf staðið með mér í deilunni
21
standa + saman
standa saman
sýna samstöðu
verkafólkið stóð saman um réttindamál sín
22
standa + til
það stendur til að <halda veislu>
ætlunin er að halda veislu, veisla er í undirbúningi
það stendur mikið til
mikið tilstand er í undirbúningi
23
standa + undir
standa (ekki) undir <kostnaðinum>
geta (ekki) borið kostnaðinn
standa (ekki) undir nafni
vera (ekki) jafngóður og nafnið gefur til kynna
24
standa + upp á
það stendur upp á <hana>
röðin er komin að henni að aðhafast
25
standa + upp úr
a
<grastoppar> standa upp úr <snjónum>
þeir ná upp fyrir snjóinn
b
<þetta> stendur upp úr
þetta ber af, er flottast
síðasta atriðið á tónleikunum stóð upp úr
26
standa + uppi
a
standa uppi eignalaus
koma út sem eignalaus maður, vera orðinn eignalaus
standa uppi slyppur og snauður
vera orðinn fátækur
b
líkið stendur uppi
gamalt
líkið liggur í kistu í heimahúsi
27
standa + við
standa við <loforðið>
efna loforðið
stjórnvöld hafa ekki staðið við að byggja nýja brú
28
standa + yfir
a
standa yfir <henni>
vera yfir henni, hjá henni
hann stóð yfir mér meðan ég skrifaði bréfið
b
<ráðstefnan> stendur yfir
ráðstefnan er haldin núna, verið er að halda hana
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stend
stóð
önnur persóna
stendur
stóðst
þriðja persóna
stendur
stóð
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stöndum
stóðum
önnur persóna
standið
stóðuð
þriðja persóna
standa
stóðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stenst
stóðst
önnur persóna
stenst
stóðst
þriðja persóna
stenst
stóðst
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stöndumst
stóðumst
önnur persóna
standist
stóðust
þriðja persóna
standast
stóðust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
standi
stæði
önnur persóna
standir
stæðir
þriðja persóna
standi
stæði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stöndum
stæðum
önnur persóna
standið
stæðuð
þriðja persóna
standi
stæðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
standist
stæðist
önnur persóna
standist
stæðist
þriðja persóna
standist
stæðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stöndumst
stæðumst
önnur persóna
standist
stæðust
þriðja persóna
standist
stæðust
nafnháttur
standa
sagnbót
staðið
lýsingarháttur nútíðar
standandi
nafnháttur
standast
sagnbót
staðist
lýsingarháttur nútíðar
standandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
statt
stattu
standið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stendurðu
stóðstu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
standiði
stóðuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
standirðu
stæðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
standiði
stæðuði
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
stenstu
stóðstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
standistu
stæðistu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stendur
stóð
önnur persóna
stendur
stóð
þriðja persóna
stendur
stóð
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
stendur
stóð
önnur persóna
stendur
stóð
þriðja persóna
stendur
stóð
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
standi
stæði
önnur persóna
standi
stæði
þriðja persóna
standi
stæði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
standi
stæði
önnur persóna
standi
stæði
þriðja persóna
standi
stæði
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
staðinn
staðin
staðið
þolfall
staðinn
staðna
staðið
þágufall
stöðnum
staðinni
stöðnu
eignarfall
staðins
staðinnar
staðins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
staðnir
staðnar
staðin
þolfall
staðna
staðnar
staðin
þágufall
stöðnum
stöðnum
stöðnum
eignarfall
staðinna
staðinna
staðinna