vöxtur
nafnorð karlkyn
1
það að maður, dýr eða planta stækkar
það er góður vöxtur í tómatplöntunni
vera <hár; lítill> vexti
2
aukning eða stækkun e-s, útþensla
aukin umferð fylgdi vexti borgarinnar
3
aukið vatnsmagn í læk eða á
<áin> er í vexti
svo er mál með vexti að <hún er ágætt skáld>
þannig er að hún er gott skáld
<flíkin> er við vöxt
flíkin er vel stór
<safnið> er mikið að vöxtum
safnið er mjög stórt
<íþróttaiðkun> færist í vöxt
íþróttaiðkun verður algengari, útbreiddari
Orðasvið og samstæður
vaxtarlag
líkamsþroski
- stálpast
- , fullvaxinn
- , fullvaxta
- , fullþroskaður
- , líkamsþroski
- , vöxtulegur
Samstæður
- framþróun
- , þróun
- , framfarir
- , uppbygging
- , þroski
- , framvinda
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
vöxtur
vöxturinn
þolfall
vöxt
vöxtinn
þágufall
vexti
vextinum
eignarfall
vaxtar
vaxtarins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
vextir
vextirnir
þolfall
vextivöxtu
vextina
þágufall
vöxtum
vöxtunum
eignarfall
vaxta
vaxtanna