átt
nafnorð kvenkyn
stefna: norður, suður, austur eða vestur
<ganga> í áttina að <bænum>
á hvaða átt er hann?
hvaða vindátt er?, hvaðan blæs vindurinn?
ná áttum
átta sig (á staðreyndum)
týna áttum/áttunum
missa sjónar á skynsamlegri stefnu
vera á báðum áttum
vera í vafa, vera óákveðinn
þetta er í áttina
þetta er á réttri leið
þetta er skref/spor í rétta átt
þetta er framför, þetta er á réttri leið
þetta nær engri/ekki nokkurri átt
þetta er ómögulegt, fráleitt
<þetta> kemur úr hörðustu átt
þetta kemur frá þeim sem síst hefur efni á því
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
- af hvaða átt er hann?
- á hvaða átt er hann?
- breytileg átt
- hann er farinn að mæðast á áttinni
- hann er genginn af átt
- hann er hreinn á áttinni
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
átt
áttin
þolfall
átt
áttina
þágufall
átt
áttinni
eignarfall
áttar
áttarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
áttir
áttirnar
þolfall
áttir
áttirnar
þágufall
áttum
áttunum
eignarfall
átta
áttanna