bátur
nafnorð karlkyn
1
lítið farartæki á vatni drifið af seglum, mótor eða árum
2
bátlaga stykki af ávexti, t.d. appelsínu- eða eplabátur
gefa <öll þessi áform> upp á bátinn
hætta við öll þessi áform
leggja árar í bát
gefast upp
vera á sama báti og <hún>
vera í sömu aðstöðu og hún
vera einn á báti
vera einn, t.d. með verkefni, í afstöðu, í tiltekinni aðstöðu
það gefur á bátinn
erfiðleikar steðja að
það kemur babb í bátinn
það kemur upp vandamál, smáhindrun
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Orðasambönd
- bátur með rá og reiða
- einn á báti
- gefa sjálfan sig upp á bátinn
- leggja allar árar í bát
- leggja árar í bát
- leggja ekki árar í bát
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
bátur
báturinn
þolfall
bát
bátinn
þágufall
bátibát
bátnum
eignarfall
báts
bátsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
bátar
bátarnir
þolfall
báta
bátana
þágufall
bátum
bátunum
eignarfall
báta
bátanna