skarð
nafnorð hvorugkyn
1
lægð, rifa eða rof í eitthvað annars samfellt
hann gerði skarð í vegginn svo krakkarnir kæmust þar um
það er skarð í kaffibollanum
skarð í höku
skarð í vör
2
lægð milli fjallshnúka eða hárra fjalla
vegurinn liggur um skarðið
fylla skarð <hennar>
taka sæti hennar
hann er að reyna að finna starfsmann sem getur fyllt skarð hennar
hlaupa í skarðið fyrir <enskukennarann>
leysa enskukennarann af
höggva stórt skarð í <íbúafjöldann>
fækka íbúunum mikið
það er skarð fyrir skildi
það er mikill missir, vöntun
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
skarð
Orðasambönd
- bæta í skarðið
- drepa í skörðin
- hlaupa í skarðið
- ljúga í skörðin
- skarð í vör
- vera með skarð í vör
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
skarð
skarðið
þolfall
skarð
skarðið
þágufall
skarði
skarðinu
eignarfall
skarðs
skarðsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
skörð
skörðin
þolfall
skörð
skörðin
þágufall
skörðum
skörðunum
eignarfall
skarða
skarðanna