Yrða

þungur

lýsingarorð
1
sem er mörg kíló að þyngd
hvað ertu þungur?
þung ferðataska
vera þungur á sér
vera hægur og þyngslalegur, hafa áreynslumiklar hreyfingar
vera þungur til gangs
eiga erfitt með gang
2
erfiður (að komast gegnum)
færð er þung á öllum vegum
textinn er of þungur fyrir byrjendur
3
sem er erfitt að melta
þú skalt ekki borða þungan mat rétt fyrir svefninn
4
sem hefur mikil áhrif, mikill
þau hafa þungar áhyggjur af dóttur sinni
5
alvarlegur í viðmóti, án glaðværðar
hún er svo þung í dag, tölum frekar við hana seinna
vera þungur á brún(ina)
vera þungur á svip(inn)
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Frumstig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
þungur
þung
þungt
þolfall
þungan
þunga
þungt
þágufall
þungum
þungri
þungu
eignarfall
þungs
þungrar
þungs
Miðstig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
þyngri
þyngri
þyngra
þolfall
þyngri
þyngri
þyngra
þágufall
þyngri
þyngri
þyngra
eignarfall
þyngri
þyngri
þyngra
Efsta stig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
þyngstur
þyngst
þyngst
þolfall
þyngstan
þyngsta
þyngst
þágufall
þyngstum
þyngstri
þyngstu
eignarfall
þyngsts
þyngstrar
þyngsts