hæð
nafnorð kvenkyn
1
það hversu hátt e-ð er
hann er meðalmaður á hæð
hæð borðsins er 80 cm
skógurinn vex upp í 1000 metra hæð yfir sjó
flugvélin flaug í 12 km hæð
2
afmörkuð upphækkun í landslagi
3
gólfflötur í húsi eða byggingu
húsið er tvær hæðir og ris
fjögurra hæða hús
tveggja hæða strætó
4
veðurfræði
svæði í andrúmsloftinu þar sem loftþrýstingur er hærri en annars staðar umhverfis, háþrýstisvæði
hæðin yfir Grænlandi nálgast hratt
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
hæð
hæðin
þolfall
hæð
hæðina
þágufall
hæð
hæðinni
eignarfall
hæðar
hæðarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
hæðir
hæðirnar
þolfall
hæðir
hæðirnar
þágufall
hæðum
hæðunum
eignarfall
hæða
hæðanna