hætta
nafnorð kvenkyn
eitthvað hættulegt, háski, voði, ógn
eiga á hættu að <tapa öllum peningunum>
stefna/stofna <öryggi manna> í hættu
vera í hættu
vera úr hættu
það er hætta á ferðum
það er hætta á því að <ísinn bresti>
<góð hreyfing> dregur úr hættu á <offitu>
bjóða hættunni heim
kalla yfir sig óhapp, slys
lélegar raflagnir í húsum bjóða hættunni heim
tefla á tvær hættur
taka áhættu
hann ákvað að tefla ekki á tvær hættur og tók sjónvarpið úr sambandi
það er ekki hundrað í hættunni
það skiptir ekki miklu máli
það er ekki hundrað í hættunni þó ég missi af einum þætti
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
hætta
Orðasambönd
- bjóða hættunni birginn
- bjóða hættunni heim
- eiga ekkert á hættu
- hafa seinar hættur
- hafa sig í hættu
- í hættu staddur
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
hætta
hættan
þolfall
hættu
hættuna
þágufall
hættu
hættunni
eignarfall
hættu
hættunnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
hættur
hætturnar
þolfall
hættur
hætturnar
þágufall
hættum
hættunum
eignarfall
hætta
hættanna